Víðigerði , 320 Reykholt í Borgarfirði
Tilboð
Lóð
0 herb.
11729 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
162.000.000
Fasteignamat
45.640.000

Víðigerði. 
Víðigerði er jörð staðsett við Deildartunguhver í Borgarfirði. Gott töluvert endurnýjað hús á einni hæð með tvöföldum bílskur. Matarvagn með rekstraleyfi við gróðurhús. Verið er að innrétta 50 fm gestahús sem áður var verkstæðishús. Þá er einnig verið að útbúa salernisaðstöðu fyrir gesti matarvagns. Nokkur gróðurhús, pökkunarskemma. Veitingavagninn er staðsettur við Deildartunguhver sem er fjölsóttur ferðamannastaður. Frábært tækifæri fyrir aðila sem að vilja halda áfram uppbyggingu á rekstri matarvagns og gróðurhúsa. Einnig er hægt að vera með gistingu í húsinu. Jörðinni fylgir 2sek af heitu vatni úr hitaveitu svæðisins. 

Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur G. Sveinbjörnsson, Löggiltur fasteigna og fyrirtækjasali á Höfn fasteignasölu í síma 8228283 og [email protected]

Nánari lýsing.
Einbýlishús:
Húsi er á einni hæð. Töluvert mikið endurnýjað. Stór pallur við sunnan meginn húss með heitum potti.
Komið er inn í andyrri með flísum á gólfi, inn af anddyri er baðherbergi með sturtu. Stórt svefnherbergi er inn af anddyri. Hol í miðju húss þaðan sem gengið er inn í allar vistarverur hússins. Fjögur rúmgoð svefnherbergi, stofa, eldhús, borðstofa og baðherbergi með baðkari. Útgengt úr stofu út á suðurverönd með heitum potti. Baðherbergið er flísalagt með baðkari og útgengt er úr baði. Fallegt og töluvert endurnýjað hús með fimm svefnherbergjum. Stór tvöfaldur bílskúr. Snyrtilegt í kringum hús. Húsið stendur hátt og er aðeins frá gróðurhúsunum.
Gróðurhúsin eru nokkur. Stærsta húsið er í notkun og í hluta þess er aðstað fyrir matargesti matarvagnsins. Ástand gróðurhúsa misjafnt og ekki öll í notkun. 
Matarvagnin var byggður og settur upp 2019 og er með stórri verönd fyrir framan og aðstöðu fyrir gesti til að sitja. Góður vaxandi rekstur er á matarvagni og kjörið tækifæri fyrir áhugasama aðila til að láta hann vaxa enn frekar. Einnig er hægt að auka ræktun í gróðurhúsum fyrir eigin notkun og eða sölu á staðnum. Verið er að útbúa salernisaðstöðu fyrir gesti. Gott pökkunarhús er tengt gróðurhúsum. 
Búið er að breyta 50 fm húsi, sem áður var verkfærageymsla, í gestahús sem hægt verður að leigja út.
Sundlaug er við enda gróðurhúsana, þarfnast standsetningar.
Jörðin er leigujörð til 50 ára.

Þetta er kjörið tækifæri fyrir aðila sem að vilja taka við rekstir sem er í hröðum vexti og margir möguleikar fyrir öfluga aðila.

Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur G. Sveinbjörnsson, Löggiltur fasteigna og fyrirtækjasali á Höfn fasteignasölu í síma 8228283 og [email protected]

Nokkur atriði frá seljanda varðandi viðhald og endurbyggingar á húsum
2019 var stofnæðin fyrir 3 gróðurhús endurnýjuð. 
Lögnum breytt í stóra húsi og gerð aðstaða fyrir gesti að sitja inni. 
Einbýlishúsið var allt malað að innan. Settur upp Varmaskiptir og öll pipulögn endurnýjuð sem og ofnar. Settur 12 manna heitur pottur fyrir framan hús  og smíðuð verönd. 
Nýtt   parket sett a allt husið. 
2020
Sett nýtt járn á þak hússins. 
Klárað ad klæða husið að utan 
Klæddi matarvagn og opnaði 2.mars 
Er að rækta í stóra husinu gulrætur, stóra og litla tómata og smá sítrónugúrka. Byrja að selja í næstu viku
2024 gert gistiaðstaða í gestahúsi.
2024 verið að útbúa salernisaðstöðu fyrir gesti matarvagns.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.